Ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta

Fimmtudaginn 19. nóvember 2009, kl. 21:18:16 (0)


138. löggjafarþing — 29. fundur,  19. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[21:18]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr) (andsvar):

Frú forseti. Ég verð eiginlega að viðurkenna fyrir hv. þingmanni að ég er svolítið orðin eins og laxinn sem er orðinn mjög þreyttur eftir viðureign við veiðimanninn. Sú lausn sem ég sé núna er að fella þetta frumvarp. Það fyndist mér miklu hreinlegra, og fljótlegri leið á þessu stigi málsins. Þá er boltinn hjá Bretum.