ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Mig langar að taka þessa auðlindaumræðu aðeins lengra. Ég deili þessum áhyggjum með henni. Ég held að það sé mjög verðug spurning fyrir okkur hvort það sé möguleiki að í þessum samningum og í þessum mikla þrýstingi sem þjóðin hefur verið beitt, sem Íslendingar hafa verið beittir í aðdraganda þessara samninga, í þessum samningaviðræðum, geti verið undirliggjandi ástæða þessara þjóða að sælast hér í auðlindir okkar og að það geti verið það sem hvílir líka í þeirri ógn sem þessar samningaviðræður eru klárlega við umsóknarferli okkar að Evrópusambandinu. Eru þessar þjóðir að sýna þarna klærnar í því að vilja seilast einmitt í sjávarauðlindir okkar, orkuauðlindir og vatnið og aðrar þær auðlindir sem hér kunna að vera og mögulega kannski stöðu landsins?
Ef hún færi aðeins nánar yfir þetta og ef hún þekkir dæmi þess hvernig þetta hefur farið fram annars staðar.