ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Hæstv. forseti. Nei, ég tel ekki mikla þörf á að ljúka þessu máli í einhverju snarhasti, alls ekki. Ég sé engin sérstök rök til þess og hef ekki heyrt þau í þessari umræðu. Ég hef ekki heyrt hér við 2. umr. um frumvarpið neinn halda því fram að það væru einhverjar aðstæður, ytri aðstæður sem væru svo knýjandi að við þyrftum að klára þetta í hvelli. Ég hef miklu frekar heyrt þau sjónarmið úr röðum stjórnarliða að málið sé orðið svo leiðinlegt að það verði að klára það, koma því frá og losna undan því oki að standa hér og ræða um Icesave. Ég hef heyrt svoleiðis sjónarmið en ekki nein málefnaleg sjónarmið, ekki nein efnisleg sjónarmið sem gera það að verkum að við verðum að knýja fram niðurstöðu í þessu máli.
Þegar við berum saman frumvarpið eins og það lítur út núna og þau lög sem voru samþykkt í sumar, eftir vissulega mikla vinnu af hálfu fjárlaganefndar, sjáum við að við erum að tala um allt annað mál. Sú vinna sem var unnin í sumar nýtist því bara að hluta. (Forseti hringir.) Það er mikil vinna enn óunnin í sambandi við þetta mál.