Ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta

Þriðjudaginn 24. nóvember 2009, kl. 21:57:01 (0)


138. löggjafarþing — 30. fundur,  24. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[21:57]
Horfa

Forseti (Þuríður Backman):

Forseti vill vegna orða hv. þm. Birgis Ármannssonar benda á að enn eru mjög margir á mælendaskrá sem hafa áhuga á því að taka þátt í þessari umræðu og því telur forseti að það sé mjög mikilvægt að við höldum vel á spöðunum og höldum áfram um sinn að ræða þetta mikilsverða mál.