Ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta

Föstudaginn 27. nóvember 2009, kl. 12:22:04 (0)


138. löggjafarþing — 33. fundur,  27. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[12:22]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Það er náttúrlega makalaust að ekki sé einn einasti þingmaður frá stjórnarliðum í salnum til að taka þátt í þessum umræðum og ég óska eftir því að einhver ráðherra eða forsvarsmenn fjárlaganefndar komi í salinn, taki þátt í þessu og hlusti á það sem hér fer fram. Mjög merkilegar upplýsingar komu fram í ræðu hv. þm. Tryggva Þórs Herbertssonar og ég óska einlæglega eftir því að gerðar verði ráðstafanir til að einhverjir ráðherrar verði hér í salnum sem eiga að láta sig þetta mál varða.