Ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta

Föstudaginn 27. nóvember 2009, kl. 15:14:45 (0)


138. löggjafarþing — 33. fundur,  27. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[15:14]
Horfa

Forseti (Steinunn Valdís Óskarsdóttir):

Vegna fyrirspurnar þingmannsins vill forseti ítreka það sem 1. varaforseti sagði fyrr á fundinum, að gerðar hafi verið ráðstafanir til að láta þá þingmenn vita sem óskað hefur verið eftir að komi í salinn, þ.e. formann og varaformann fjárlaganefndar. Að öðru leyti er gert ráð fyrir að halda áfram miðað við dagskrána.