Ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta

Laugardaginn 28. nóvember 2009, kl. 15:07:13 (0)


138. löggjafarþing — 34. fundur,  28. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[15:07]
Horfa

Forseti (Steinunn Valdís Óskarsdóttir):

Forseti biðst velvirðingar á því, en hv. þm. Illugi Gunnarsson heldur því fram að hann hafi beðið um orðið undir liðnum um fundarstjórn forseta. Forseti verður að játa að hann tók ekki eftir því merki, en verður að biðja hv. þm. Siv Friðleifsdóttur að víkja úr pontu og gefa hv. þm. Illuga Gunnarssyni orðið um fundarstjórn forseta.