Ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta

Laugardaginn 28. nóvember 2009, kl. 20:38:58 (0)


138. löggjafarþing — 34. fundur,  28. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[20:38]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill geta þess að sá forseti sem hér er sat í forsætisnefnd þegar frumvarpið var þar til umfjöllunar og tók þátt í lagasetningunni. Forseti þekkir því lögskýringargögnin ágætlega.