ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Hæstv. forseti. Hv. þm. Birgitta Jónsdóttir kemur með mjög skynsamlega nálgun á málið, finnst mér, að rétt sé að leiða málið einhvern veginn í jörð þannig að við þurfum ekki að standa í argaþrasi út af því frekar. Þegar upp koma alvarleg ágreiningsmál, ég tala nú ekki um grundvallardeila um túlkun þingskapa, þá hlýtur að vera töluverð skynsemi í því að gera hlé á fundinum og reyna að leiða málið til lykta áður en lengra er haldið.
Sá kostur er auðvitað fyrir hendi fyrir hæstv. forseta að halda áfram fundi með þeim afleiðingum sem það kann að hafa. Það gengur þvert á réttlætiskennd okkar þingmanna stjórnarandstöðunnar að þinginu sé stjórnað með þessum hætti og við munum að sjálfsögðu láta þau sjónarmið koma í ljós. Það er ekki nokkur hætta á öðru. Og það er þá ákvörðun hæstv. forseta að halda fundi áfram með bullandi ágreiningi um túlkun ákvæða, með bullandi ágreiningi manna á milli um þessi atriði og í þeirri óvissu, þeirri lagalegu óvissu sem snýr að lagalegu gildi og stöðu þess þingfundar sem við höldum. Ég er þeirrar skoðunar að þessi þingfundur eða framhald hans eftir kl. átta sé augljóslega í trássi við ákvæði þingskapa og ég tel að það sé ekki nokkur vitræn leið til að komast að annarri niðurstöðu. Ég held að við hljótum að vera sammála um að þegar við túlkum lög hljótum við að gera það á vitrænan hátt. Við hljótum að velta fyrir okkur hvað þeir sem sömdu lagaákvæðin voru að hugsa og verðum að ætla þeim að eitthvert vit hafi verið í því sem þeir voru að hugsa þar til annað kemur í ljós.