ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni kærlega fyrir ræðuna og var áhugavert að heyra hann tala um heiðarleikann. Ég hætti mér ekki út í þá umræðu hér því að seinast þegar ég gerði það þurfti ég að bera af mér sakir, en það er önnur saga.
Ég heyrði ekki betur en að í upphafi máls síns hafi hv. þingmaður komið þeirri skoðun sinni á framfæri að hægri menn væru þjóðhollari en vinstri menn en ég get kannski ekki alveg tekið undir það. Hann ræddi einnig um samstöðu og ég tek undir að samstöðu er þörf. Við verðum að standa saman og koma okkur upp úr skotgröfunum. Hægri og vinstri mennska skipta ekki máli á svona tímum. Við verðum að ná samstöðu allra stjórnmálaafla sem eiga sæti á þingi og samstöðu meðal þjóðarinnar því að þetta mál er að sundra okkur sem þjóð.
Ég hjó einnig eftir því í máli hv. þingmanns að honum fannst það eitthvað slæmt að almenningur skyldi hafa látið í sér heyra síðasta vetur. Ég get ekki tekið undir það. Hér í vetur reis fólkið upp og lét í sér heyra vegna þess að stjórnvöld hlustuðu ekki. Það var algjörlega nauðsynlegt á þeim tíma og því þykir mér það þyngra en tárum taki að núverandi stjórnarflokkar — og var nú annar þeirra af mörgum talinn ábyrgur fyrir mótmælunum í vetur — skuli ekki heldur hlusta á fólkið í landinu og læra af sögunni.
Þá langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki sammála mér um að það stefni allt í að almenningur muni rísa hér upp aftur.