ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Hæstv. forseti. Fyrir það fyrsta vildi ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir að halda ræðu í þessari umræðu. Hann hefur ekki gert það áður, hann hefur komið nokkrum sinnum í andsvör og setið vel í salnum og allt er það gott en það er auðvitað fengur að því að fá hæstv. fjármálaráðherra í ræðustól til að gera grein fyrir sjónarmiðum sínum því á það hefur nokkuð skort fram að þessu.
Það eru örfáar athugasemdir sem mér finnst nauðsynlegt að koma fram með við ræðu hæstv. fjármálaráðherra og kem ég ekki nema örlitlu að í þessu stutta andsvari. Fyrir það fyrsta, gleymdi hæstv. fjármálaráðherra því í upprifjun sinni á gangi málsins í desember í fyrra að alltaf lá fyrir að málið þyrfti að koma fyrir Alþingi aftur? Það var undirritað og kom stíft fram í nefndaráliti utanríkismálanefndar að gert var ráð fyrir að sá samningur sem næðist kæmi aftur til þingsins og þingið mundi þá meta hvernig með skyldi fara þannig að ekki var um að ræða eitthvert óskilyrt umboð til ríkisstjórnarinnar um að ganga frá hvaða samningi sem var.