ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þetta eru mjög athyglisverðar tölur, herra forseti. Við hljótum að þurfa að velta því fyrir okkur hvort sá tekjugrunnur sem notaður er í vinnunni sem er fram undan í fjárlaganefnd byggir á skattgreiðslum 180.000 einstaklinga eða skattgreiðslum 100.000 einstaklinga. Ef við erum búin að taka frá 80.000 skattgreiðendur sem eiga að borga bara af Icesave getum við varla notað sama skattinn aftur í fjárlagafrumvarpinu til þess að standa undir öllu því sem þar er.
Mér finnst vanta svör frá stjórnvöldum og þeim sem bera ábyrgð á fjárlagafrumvarpinu hvort þetta sé svona. Ég veit að hv. þingmaður sér með menntun sinni og reynslu að það gengur ekki að nota sama skattinn tvisvar, jafnvel þó að við séum á Íslandi og með svokallaða norræna velferðarstjórn.