ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Hæstv. forseti. Það er kannski einmitt að mínu viti hugsanlegt dæmi um það að íslensku samningamennirnir hafi verið plataðir við samningagerðina, það hafi verið leikið á þá og þeir verið sannfærðir af hálfu Breta og Hollendinga um að mikilvægasti efnahagslegi fyrirvarinn væri kominn inn í samninginn og því þyrfti engar áhyggjur að hafa. Eins og fram hefur komið í máli stjórnarliða verður aldrei greitt nema ákveðið hámark af höfuðstólnum. Svo stendur það einfaldlega út af að afgangurinn, ef ekki næst að greiða hann upp, mun safna vöxtum út í hið óendanlega. Það er ekki í anda Brussel-viðmiðanna, það heitir ekki að taka mið af efnahagsástandinu á Íslandi á hverjum tíma. Það heitir að binda íslenskt þjóðfélag á skuldaklafa hugsanlega áratugi fram í tímann. Það er einfaldlega óásættanlegt í mínum augum (Forseti hringir.) og ég mun reyna að stöðva það ef ég mögulega get.