ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Pétur Blöndal upplifir að þrýstingurinn sé farinn af þessu máli og við getum núna tekið okkur langan tíma í þetta og farið að semja upp á nýtt. Það sjónarmið hafa mjög margir, sérstaklega í stjórnarandstöðunni. Ég hef reyndar verið á þeirri skoðun að gera eigi úrslitatilraun til að hitta fjármálaráðherra og forsætisráðherra Breta og Hollendinga og ég hef borið fram þá ósk á þingi. Í þá ósk var ekki vel tekið og ég tel að við hefðum átt að sýna meiri baráttuvilja á endasprettinum í þessu máli.
Í sumar var ákveðinn baráttuvilji í þessu máli og því var breytt töluvert mikið, m.a. út af vilja stjórnarandstöðunnar en ekki síður vegna vilja stjórnarflokkanna og kannski sérstaklega VG. Það var ekki fyrr en búið var að setja inn verulega sterka fyrirvara að VG kom um borð. Þá skapast meiri hluti fyrir þessu máli og þess vegna var það svona lengi hérna inni. Eins og staðan er núna held ég að þessir þingmenn VG, sem eru m.a. hv. þm. Ögmundur Jónasson, hv. þm. Lilja Mósesdóttir, hv. þm. Ásmundur Einar Daðason og hv. þm. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, hafi talið sér trú um það — með réttu eða ekki, ég ætla ekki að kveða upp úr með það, en þessir hv. þingmenn hafa meira eða minna fagnað þessari niðurstöðu. (PHB: Ekki Lilja Mósesdóttir.) Ekki reyndar hv. þm. Lilja Mósesdóttir en ég man eftir viðtölum við hv. þm. Ásmund Einar Daðason og Guðfríði Lilju Grétarsdóttur þar sem þau fóru fremst í flokki. Sérstaklega hv. þm. Ásmundur Einar Daðason sem fór að túlka niðurstöðuna áður en hæstv. ráðherra tjáði sig um málið og sagði að þetta væri það skásta sem fengist í stöðunni. Þessir hv. þingmenn VG hafa kosið að telja að málið sé fullreynt og ég sé því ekki að það skapist einhver (Forseti hringir.) nýr meiri hluti fyrir því að gera breytingar á málinu eða ræða það frekar, nema stjórnarandstaðan vilji auðvitað ræða þetta betur. (Forseti hringir.) Einnig eru að koma fram nýjar upplýsingar sem er eðlilegt að ræða en (Forseti hringir.) það er hrópandi þögn frá VG.