Ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta

Miðvikudaginn 02. desember 2009, kl. 21:03:25 (0)


138. löggjafarþing — 36. fundur,  2. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[21:03]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti tekur undir með hv. þingmanni að erfitt er að sjá hvenær fundi lýkur. Flestar ræður sem eru eftir eru í 10 mínútur og það voru 13 á mælendaskrá þegar forseti upplýsti um það að forseti hygðist leitast eftir því að halda fund þar til mælendaskrá yrði tæmd og umræðu um málið lokið.