Ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta

Miðvikudaginn 02. desember 2009, kl. 23:35:49 (0)


138. löggjafarþing — 36. fundur,  2. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[23:35]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef engan áhuga á að fella þessa ríkisstjórn. Ég held að það væri ekki þjóðinni til hagsbóta. Ég hef ekki heyrt neinn annan en forsætisráðherra lýsa því yfir að ríkisstjórnin muni ekki standa þessa Icesave-flóðbylgju af sér og við þingmenn Hreyfingarinnar höfum lýst því yfir að okkur finnist þessi mál ekki tengjast og þau eiga ekki að gera það. Þetta er óþverramál og þetta er ekki Vinstri grænum að kenna en þeir lenda náttúrlega í tiltektinni. Mergurinn málsins er að við þurfum að vinna þetta saman og það eru menn ekki að gera.