138. löggjafarþing — 36. fundur, 3. des. 2009.
ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
76. mál
Virðulegi forseti. Þar sem forseti bað um að sér væri sýnd tilhlýðileg virðing vildi ég bara segja að virðing er í báðar áttir. Sú umræða sem á sér hér stað og þessi gagnrýni á virðulegan forseta er vegna þess að hann hefur sýnt hv. þingmönnum virðingarleysi.