ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson sagði árið 2006 er það dapurlegt þegar stjórnarandstaðan beitir skipulegu málþófi til að hindra að meirihlutavilji Alþingis nái fram að ganga. Hann bað þá, með leyfi forseta, þingheim að hugsa þetta alla leið:
„Er það virkilega svo að mönnum þyki lýðræðislegt og réttlátt að svona vinnubrögð séu viðhöfð? Vilja menn, virðulegur forseti, að þingið okkar sé þannig að þegar stjórnarandstaðan fer í málþóf geti hún stoppað mál sem meiri hluti er fyrir?“
Hér er mikið talað um fjölskylduvænan vinnustað. Staðreynd er auðvitað sú að málþófsflokkarnir hafa skipulagt málþóf til að reyna að koma í veg fyrir að meirihlutavilji geti gengið fram. Þeim er í lófa lagið að haga sínum excel-skjölum þannig að fjölskyldufólk geti sinnt dagvaktinni og aðrir geti tekið næturvaktina. (Gripið fram í.) Það er greinilegt að þessum mönnum er ekkert um megn þegar kemur að því að virða að vettugi eðlileg, þingræðisleg vinnubrögð. Það er sjálfsagt að þeir sjái um það sjálfir í excel-skjölum sínum að láta fjölskyldufólkið fá að njóta dagvinnunnar. (Gripið fram í: Skertu bara fæðingarorlofið.)