138. löggjafarþing — 37. fundur,  3. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[22:04]
Horfa

Forseti (Þuríður Backman):

Forseti vill upplýsa að hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra er erlendis og hæstv. fjármálaráðherra, hæstv. forsætisráðherra og fleiri ráðherrar eru hér í húsinu. Ráðherrar hafa komið hingað í salinn og setið eftir því sem tök hafa verið á þó að þeir séu ekki staddir hér í augnablikinu.