Ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta

Þriðjudaginn 08. desember 2009, kl. 14:28:16 (0)


138. löggjafarþing — 41. fundur,  8. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[14:28]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Frú forseti. Þessu máli er ekki lokið. Mitt mat er að lengra verði komist. Hér var gert samkomulag um málsmeðferð í fjárlaganefnd milli stjórnar og stjórnarandstöðu. Það samkomulag ber stjórnarflokkunum að virða og það samkomulag skulu stjórnarflokkarnir virða. Það samkomulag tryggir vonandi að þetta frumvarp verði aldrei að lögum, aldrei. Þetta kalla ég, frú forseti, ekki að þvælast fyrir, þetta kalla ég að leyfa lýðræðinu að ganga sinn gang. Ég segi nei.