Fjáraukalög 2009

Þriðjudaginn 15. desember 2009, kl. 20:04:20 (0)


138. löggjafarþing — 45. fundur,  15. des. 2009.

fjáraukalög 2009.

10. mál
[20:04]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það ríkir enn þá óvissa um tekjuhluta frumvarpsins. Við sem stöndum að áliti minni hlutans höfum einnig bent á að upplýsingar varðandi stóra tekjuliði og tilraunir til að rétta fjáraukalögin af komu fram á allra, allra síðustu stundu og við gerum grein fyrir þeim bókhaldsæfingum í álitinu.

Við framsóknarmenn munum sitja hjá við atkvæðagreiðslu þessa.