Sjúkratryggingar

Fimmtudaginn 17. desember 2009, kl. 16:29:41 (0)


138. löggjafarþing — 49. fundur,  17. des. 2009.

sjúkratryggingar.

324. mál
[16:29]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Álfheiður Ingadóttir) (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hv. þingheimur. Ég vil vekja athygli á því að í því frumvarpi sem hér er verið að greiða atkvæði um er að finna lagaheimild til þess að taka gjald fyrir dvöl á sjúkrahóteli. Ég segi já.