ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Ég hef ekki lagt persónulegt mat á starf þessarar lögmannsstofu heldur hef ég byggt það á því sem ég hef heyrt hér á þinginu, því sem menn hafa haldið fram og þeirri staðreynd að það var íslenska ríkið sem réð hana í vinnu. Ég vona bara að íslenska ríkið eða utanríkisráðuneytið ráði ekki einhverja aukvisa í vinnu fyrir 150 þúsund kr. á tímann. Það væri þá illa farið með fé og verr farið með það en var gert í fjárlögunum fyrir rúmri viku síðan.
Í bréfinu segir einfaldlega: Hér eru atriði sem við höfum ekki sent sem geta varpað frekara ljósi á Icesave-málið og sem Alþingi gæti viljað skoða og nota áður en lokaniðurstöðu er náð um Icesave. (Utanrrh.: Af hverju settirðu það ekki í …?) Með þetta bréf í höndunum er einfaldlega ábyrgðarlaust að óska ekki eftir því að fá að sjá þessi gögn. Þetta er eitthvert stærsta og viðamesta mál sem Alþingi hefur fengist við (Gripið fram í.) og fleiri gögn hafa verið að streyma hér inn í dag. Enn sem komið er hef ég ekki séð neitt í þessum gögnum sem mér finnst merkilegt. En ég hef ekki séð þau öll og ég hef ekki haft tíma til að skoða þau. Ég veit ekki hvort þau eru merkileg eða ekki, það gefur augaleið. En það er ábyrgðarleysi af minni hálfu að óska ekki eftir því að farið sé yfir þau frekar en önnur gögn í þessu máli.
Eins og kom fram í máli mínu hefur ekki verið farið efnislega yfir þetta mál í þeim nefndum sem komið hafa að því. Ef það hefði verið gert hefði þetta mál sem við erum að tala hér um núna einfaldlega verið leyst í fjárlaganefnd en ekki þurft að draga þetta hér fram í þinginu dag eftir dag. Það hefði verið óþarfi og betur leyst þannig.