Ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta

Miðvikudaginn 30. desember 2009, kl. 21:32:13 (0)


138. löggjafarþing — 65. fundur,  30. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[21:32]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það er erfitt fyrir fámenna þjóð að vera sjálfstæð, en okkur tókst það. Það er að vísu afskaplega auðvelt fyrir fámenna þjóð að glata niður sjálfstæðinu og það getur gerst þegar þjóð stendur ekki saman á örlagastundu, stundu eins og þessari. Saman höfum við Íslendingar unnið stóra sigra, með samstöðunni, og núna er tækifæri, virðulegi forseti, fyrir okkur til að standa saman og greiða atkvæði með þessari tillögu.