Fundargerð 138. þingi, 1. fundi, boðaður 2009-10-01 16:00, stóð 16:01:24 til 16:17:03 gert 1 16:31
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR (frh.)

fimmtudaginn 1. okt.,

kl. 4 síðdegis.

Dagskrá:

Fjarvistarleyfi:


Varamaður tekur þingsæti.

[16:01]

Hlusta | Horfa

Forseti tilkynnti að Anna Pála Sverrisdóttir tæki sæti Skúla Helgasonar.

Anna Pála Sverrisdóttir, 7. þm. Reykv. s., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.

[16:02]

Útbýting þingskjals:


Tilkynning frá þingflokki.

Stofnun nýs þingflokks.

[16:02]

Hlusta | Horfa

Forseti las bréf frá þremur þingmönnum um stofnun nýs þingflokks, Hreyfingarinnar.


Mannabreytingar í nefndum.

[16:03]

Hlusta | Horfa

Forseti greindi frá tilkynningu frá þingflokksformanni Samfylkingarinnar um eftirfarandi mannabreytingar í nefndum:

Magnús Orri Schram hverfur úr samgöngunefnd. Ólína Þorvarðardóttir fer úr samgöngunefnd og tekur sæti í umhverfisnefnd. Steinunn Valdís Óskarsdóttir fer úr umhverfisnefnd og tekur sæti í samgöngunefnd. Björgvin G. Sigurðsson tekur sæti í samgöngunefnd.


Tilkynning um stefnuræðu forsætisráðherra.

[16:03]

Hlusta | Horfa

Forseti tilkynnti að stefnuræða forsætisráðherra færi fram mánudagskvöldið 5. október.


Afbrigði um dagskrármál.

[16:04]

Hlusta | Horfa

Leitað var afbrigða frá þingsköpum um úthlutun sæta.


Hlutað um sæti þingmanna skv. 4. mgr. 3. gr. þingskapa.

Sætaúthlutun fór á þessa leið:

  1. sæti er sæti forseta.
  2. sæti hlaut Guðlaugur Þór Þórðarson.
  3. sæti hlaut Siv Friðleifsdóttir.
  4. sæti hlaut Jón Gunnarsson.
  5. sæti hlaut Sigurður Ingi Jóhannsson.
  6. sæti hlaut Þórunn Sveinbjarnardóttir.
  7. sæti hlaut Margrét Tryggvadóttir.
  8. sæti hlaut Björgvin G. Sigurðsson.
  9. sæti hlaut Pétur H. Blöndal.
  10. sæti hlaut Vigdís Hauksdóttir.
  11. sæti hlaut Unnur Brá Konráðsdóttir.
  12. sæti hlaut Lilja Rafney Magnúsdóttir.
  13. sæti hlaut Magnús Orri Schram.
  14. sæti hlaut Jónína Rós Guðmundsdóttir.
  15. sæti hlaut Þráinn Bertelsson.
  16. sæti hlaut Ragnheiður E. Árnadóttir.
  17. sæti hlaut Höskuldur Þórhallsson.
  18. sæti hlaut Þuríður Backman.
  19. sæti hlaut Atli Gíslason.
  20. sæti hlaut Skúli Helgason.
  21. sæti hlaut Björn Valur Gíslason.
  22. sæti hlaut Birgitta Jónsdóttir.
  23. sæti hlaut Illugi Gunnarsson.
  24. sæti hlaut Ólöf Nordal.
  25. sæti hlaut Ásbjörn Óttarsson.
  26. sæti hlaut Árni Johnsen.
  27. sæti hlaut Þór Saari.
  28. sæti hlaut Birkir Jón Jónsson.
  29. sæti hlaut Birgir Ármannsson.
  30. sæti hlaut Oddný G. Harðardóttir.
  31. sæti hlaut Ásta R. Jóhannesdóttir.
  32. sæti hlaut Helgi Hjörvar.
  33. sæti hlaut Eygló Harðardóttir.
  34. sæti hlaut Bjarni Benediktsson.
  35. sæti hlaut Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
  36. sæti hlaut Einar K. Guðfinnsson.
  37. sæti hlaut Steinunn Valdís Óskarsdóttir.
  38. sæti er sæti varamanns.
  39. sæti hlaut Sigmundur Ernir Rúnarsson.
  40. sæti hlaut Tryggvi Þór Herbertsson.
  41. sæti hlaut Lilja Mósesdóttir.
  42. sæti hlaut Ragnheiður Ríkharðsdóttir.
  43. sæti hlaut Þorgerður K. Gunnarsdóttir.
  44. sæti hlaut Gunnar Bragi Sveinsson.
  45. sæti hlaut Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.
  46. sæti hlaut Guðbjartur Hannesson.
  47. sæti hlaut Ólína Þorvarðardóttir.
  48. sæti hlaut Ögmundur Jónasson.
  49. sæti hlaut Árni Þór Sigurðsson.
  50. sæti hlaut Valgerður Bjarnadóttir.
  51. sæti er sæti varamanns.
  52. sæti hlaut Ásmundur Einar Daðason.
  53. sæti hlaut Róbert Marshall.
  54. sæti hlaut Guðmundur Steingrímsson.
  55. sæti hlaut Kristján Þór Júlíusson.
  56. sæti hlaut Sigríður Ingibjörg Ingadóttir.
  57. sæti er sæti varamanns.
  58. sæti er sæti umhverfisráðherra.
  59. sæti er sæti iðnaðarráðherra.
  60. sæti er sæti dómsmálaráðherra.
  61. sæti er sæti menntamálaráðherra.
  62. sæti er sæti utanríkisráðherra.
  63. sæti er sæti forsætisráðherra.
  64. sæti er sæti fjármálaráðherra.
  65. sæti er sæti samgönguráðherra.
  66. sæti er sæti viðskiptaráðherra.
  67. sæti er sæti sjávarútvegsráðherra.
  68. sæti er sæti félagsmálaráðherra.
  69. sæti er sæti heilbrigðisráðherra.

Fundi slitið kl. 16:17.

---------------