Fundargerð 138. þingi, 141. fundi, boðaður 2010-06-14 21:00, stóð 21:00:38 til 22:57:57 gert 14 23:1
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

141. FUNDUR

mánudaginn 14. júní,

kl. 9 síðdegis.

Dagskrá:


Almennar stjórnmálaumræður.

Umræðurnarvoru sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar fóru þannig fram að hver þingflokkur fékk 22 mínútur til umráða sem skiptust í þrjár umferðir, 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur í síðustu umferð. Þingmaður utan flokka talaði síðastur í fyrstu umferð oghafði 6 mínútur.

Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum: Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Framsóknarflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð og Hreyfingin.

Ræðumenn flokkanna voru:

Fyrir Sjálfstæðisflokk talaði í fyrstu umferð Bjarni Benediktsson, 2. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri Einar K. Guðfinnsson, 5. þm. Norðvesturkjördæmis, en í þeirri þriðju Unnur Brá Konráðsdóttir, 6. þm. Suðurkjördæmis.

Ræðumenn Samfylkingarinnar voru: Þórunn Sveinbjarnardóttir, 7. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður í annarri, en í þriðju umferð Róbert Marshall, 8. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Framsóknarflokk talaði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Eygló Harðardóttir, 7. þm. Suðurkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Gunnar Bragi Sveinsson, 4. þm. Norðvesturkjördæmis.

Fyrir Vinstri hreyfinguna -- grænt framboð tala í fyrstu umferð Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, í annarri Lilja Rafney Magnúsdóttir, 6. þm. Norðvesturkjördæmis, en Margrét Pétursdóttir, 3. þm. Suðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Hreyfinguna talaði í fyrstu umferð, Margrét Tryggvadóttir, 10. þm. Suðurkjördæmis og í annarri umferð Birgitta Jónsdóttir, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Ræðumaður utan flokka Þráinn Bertelsson, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, talaði í fyrstu umferð.

[21:00]

Hlusta | Horfa

[22:57]

Útbýting þingskjala:

Fundi slitið kl. 22:57.

---------------