Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 372  —  194. mál.




Svar


fjármálaráðherra við fyrirspurn Birgittu Jónsdóttur um notkun á frjálsum og opnum hugbúnaði hjá A-hluta ríkissjóðs.

    1.      Hver voru útgjöld ríkissjóðs til hugbúnaðarkaupa árin 2006, 2007 og 2008? Hve háum fjárhæðum var varið til kaupa á sérsmíðuðum kerfum annars vegar og til kaupa á almennum hugbúnaði hins vegar? Hvernig skiptust þessar fjárhæðir milli ráðuneyta?
    2.      Hve háum fjárhæðum var varið árin 2006, 2007 og 2008 til greiðslu leyfisgjalda fyrir hugbúnað annars vegar og til greiðslu þjónustugjalda fyrir hugbúnað hins vegar? Hvernig skiptust þessar fjárhæðir milli innlendra og erlendra aðila?
    Svörin eru fengin úr tegundalykli fjárhags- og mannauðskerfa ríkisins og því sett fram með fyrirvara um að umrædd gjöld séu bókfærð með réttum hætti. Jafnframt miðast upplýsingarnar við þær stofnanir sem nota fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins við bókhald eða senda upplýsingar reglulega til birtingar í kerfunum. Tvær meginbókhaldstegundir eru notaðar við gjaldfærslu umræddra gjalda. Annars vegar tegund 5452 sem á við um sérsniðin kerfi, svo sem um aðkeypta vinnu kerfisfræðinga og aðra sérfræðiþjónustu vegna hugbúnaðargerðar, viðhalds og viðgerðar á hugbúnaði, svo og aðstoð og ráðgjöf vegna hugbúnaðar. Hins vegar tegund 5517 sem á við um kaup á almennum hugbúnaði, leyfisgjöldum og þjónustugjöldum þeim tengdum. Þessi tegund á einnig við um uppfærslu- og viðhaldssamninga af keyptum hugbúnaði.

Ár 5452
Hugbúnaðargerð
5517 Hugbúnaðarkaup Kostnaður
2006 Æðsta stjórn ríkisins 9.791.222 1.400.626 11.191.848
Forsætisráðuneyti 23.071.191 2.411.648 25.482.839
Menntamálaráðuneyti 186.827.083 89.276.093 276.103.176
Utanríkisráðuneyti 12.341.493 11.378.292 23.719.785
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti 22.477.682 29.061.515 51.539.197
Dóms- og kirkjumálaráðuneyti 126.756.930 23.159.672 149.916.602
Félags- og tryggingamálaráðuneyti 39.180.686 8.025.519 47.206.205
Heilbrigðisráðuneyti 568.585.923 24.740.609 593.326.532
Fjármálaráðuneyti 544.569.033 111.910.522 656.479.555
Samgönguráðuneyti 219.539.177 11.270.260 230.809.437
Iðnaðarráðuneyti 15.454.786 7.068.133 22.522.919
Viðskiptaráðuneyti 27.604.878 5.185.628 32.790.506
Hagstofa Íslands 28.102.188 11.182.163 39.284.351
Umhverfisráðuneyti 24.805.327 15.833.804 40.639.131
Samtals 2006 1.849.107.340 351.904.484 2.201.011.824
2007 Æðsta stjórn ríkisins 16.760.440 5.024.161 21.784.601
Forsætisráðuneyti 6.936.420 4.621.037 11.557.457
Menntamálaráðuneyti 192.227.220 88.604.364 280.831.584
Utanríkisráðuneyti 8.211.281 11.609.001 19.820.282
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti 24.690.551 28.199.233 52.889.784
Dóms- og kirkjumálaráðuneyti 114.924.888 51.791.321 166.716.209
Félags- og tryggingamálaráðuneyti 40.217.801 10.072.367 50.290.168
Heilbrigðisráðuneyti 675.085.870 29.515.189 704.601.059
Fjármálaráðuneyti 562.712.935 119.801.221 682.514.156
Samgönguráðuneyti 213.618.621 15.784.137 229.402.758
Iðnaðarráðuneyti 12.236.361 17.401.303 29.637.664
Viðskiptaráðuneyti 69.281.248 3.048.742 72.329.990
Hagstofa Íslands 14.704.034 11.226.902 25.930.936
Umhverfisráðuneyti 29.931.002 32.893.663 62.824.665
Samtals 2007 1.981.538.672 429.592.641 2.411.131.313
2008 Æðsta stjórn ríkisins 8.259.680 5.249.559 13.509.239
Forsætisráðuneyti 30.297.457 18.436.789 48.734.246
Menntamálaráðuneyti 151.753.208 131.580.496 283.333.704
Utanríkisráðuneyti 17.460.960 32.783.647 50.244.607
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti 28.693.410 27.624.570 56.317.980
Dóms- og kirkjumálaráðuneyti 151.122.511 76.334.777 227.457.288
Félags- og tryggingamálaráðuneyti 258.877.953 18.013.773 276.891.726
Heilbrigðisráðuneyti 708.901.215 116.779.214 825.680.429
Fjármálaráðuneyti 633.459.957 141.412.467 774.872.424
Samgönguráðuneyti 186.363.978 16.673.923 203.037.901
Iðnaðarráðuneyti 15.956.808 14.230.248 30.187.056
Viðskiptaráðuneyti 63.171.168 5.032.074 68.203.242
Umhverfisráðuneyti 41.693.512 32.654.950 74.348.462
Samtals 2008 2.296.011.817 636.806.487 2.932.818.304
Heildarkostnaður 6.126.657.829 1.418.303.612 7.544.961.441

    Í fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins er ekki greint sérstaklega á milli greiðslu leyfisgjalda og þjónustugjalda né heldur hvað er til innlendra aðila og hvað til erlendra aðila. Þar að auki er erfitt að átta sig á hvort erlendur hugbúnaður eða þjónusta er keypt milliliðalaust erlendis frá eða í gegnum millilið á Íslandi.

    3.      Hver er stefna ráðuneytanna hvers fyrir sig varðandi það að nota frjálsan og opinn hugbúnað í stað þess að endurnýja notendaleyfi sem greiða þarf fyrir?
    Hinn 11. mars 2008 samþykkti þáverandi ríkisstjórn stefnu um frjálsan og opinn hugbúnað. Sú stefna gildir jafnframt um ráðuneyti og ríkisstofnanir. Ekki er vitað til þess að ráðuneytin hafi mótað sér sérstaka stefnu um frjálsan og opinn hugbúnað.

    4.      Telur ráðherra að ríkissjóður geti sparað útgjöld með notkun á frjálsum og opnum hugbúnaði? Ef svo er, óskast lagt fram mat á þeim fjárhæðum sem talið er að spara megi árlega.
    Ekki liggur fyrir heildstæð greining á því hvort hægt sé að spara útgjöld með notkun á frjálsum og opnum hugbúnaði hjá ríkinu. Hins vegar gerði Parx skýrslu fyrir forsætisráðuneytið árið 2005 um opinn hugbúnað sem valkost við séreignarhugbúnað og þar kemur eftirfarandi fram:
    „Í skýrslu Ríkisendurskoðunar, Um lögmæti hugbúnaðar hjá ríkisaðilum, frá árinu 1999 er fjöldi vinnustöðva hjá þeim 322 ríkisaðilum sem rannsóknin náði til áætlaður 11.300 og ætla má að vinnustöðvum á vegum ríkisins hafi fjölgað nokkuð síðan. Ljóst er að kostnaður sem fylgir hugbúnaði fyrir vinnustöðvar ríkisaðila er umtalsverður og að mikilvægt er að stuðla að vali hagkvæmustu lausna. Miðað við þau verð sem opinberir aðilar á öðrum Norðurlöndum greiða fyrir algenga samsetningu stýrikerfis, skrifstofuhugbúnaðar og nauðsynlegs hugbúnaðar vegna tengingar við vefþjón, væri árlegur leyfiskostnaður á vinnustöð um 25.000 kr. á ári Kostnaðurinn er áætlaður miðað við beinan meðalkostnað við hugbúnaðarleyfi fyrir stýrikerfi, skrifstofuvöndul og hugbúnað til nettengingar og uppfærslurétt á 6 ára tímabili án vsk. Í þessum verðum er, auk hugbúnaðarins sjálfs, innifalin ýmiss konar þjónusta, innbyggð vírusvörn og íslenskt leiðréttingarforrit. Við það bætist kostnaður fyrir annan hugbúnað, svo sem skjalastjórnunarkerfi, PDF skrifara, sérsmíðuð kerfi, teikniforrit og annan sérhæfðan hugbúnað sem notendur kunna að vinna með. Hafa skal í huga að hugbúnaðarleyfi fyrir skóla eru oft umtalsvert ódýrari en leyfi til annarrar starfsemi.“
    Auk þess gerði embætti ríkisskattstjóra úttekt á frjálsum og opnum skrifstofuhugbúnaði á árinu 2009 sem fólst annars vegar í að prófa helstu kerfishluta OpenOffice.org og hins vegar í að prófa samskipti innanhússkerfa RSK við hugbúnaðinn. Kannaðir voru kerfishlutar OpenOffice.org hugbúnaðarins með sérstakri áherslu á ritvinnslu-, töflureiknis-, glærukynningar- og gagnaskrárhluta. Hugbúnaðurinn var skoðaður m.a. með tilliti til þess hvort aðgerðir sem notendur eru vanir úr Microsoft Office skrifstofuvöndlinum séu til staðar, t.d. varðandi fjölva, og hvort aðgerðir taki lengri eða skemmri tíma. Niðurstaða RSK var sú að OpenOffice.org fullnægi að mestu leyti þörfum starfsmanna skattkerfisins og að ekki sé þörf fyrir mikla kennslu við umskiptin. Enn fremur er talið líklegt að auðvelt sé að breyta flestum innanhússkerfum svo hægt sé að eiga samskipti við OpenOffice.org.
    Opinn og frjáls hugbúnaður er víða notaður í bakkerfum stofnana eins og fyrir netþjóna, póstþjóna, gagnagrunna o.fl. Sumar stofnanir eru einnig að nota opinn og frjálsan hugbúnað fyrir almenna notendur tölvukerfa og má þar nefna tvö dæmi. Þjóðleikhúsið hefur unnið að því að innleiða opinn og frjálsan hugbúnað fyrir starfsemi sína í stað séreignarhugbúnaðar. Leikhúsið hefur til að mynda innleitt opinn og frjálsan hugbúnað fyrir tölvupóstkerfi og skrifstofuvöndla og er talið að kostnaðurinn fyrsta árið við þessi kerfi sé um fjórðungur af þeim árlega kostnaði sem stofnunin greiddi áður fyrir sambærileg kerfi með séreignarhugbúnaði. Annað dæmi er hjá Verkmenntaskólanum á Akureyri. Verkmenntaskólinn ákvað að nýta betur eldri tölvur sem höfðu verið settar í geymslur með því að setja upp frjálsan og opinn hugbúnað, m.a. stýrikerfi, á vélarnar og nýta þær fyrir nemendur skólans. Þannig telur skólinn þeir sig ekki einungis spara í hugbúnaðarleyfum heldur einnig í kostnaði tengdum vélbúnaði með því að nýta vélbúnaðinn lengur.
    Á grundvelli framangreindra úttekta má álykta að líkur bendi til að til lengri tíma litið sé hægt að spara verulega fjármuni hjá ríkisstofnunum með því að innleiða frjálsan og opinn hugbúnað. Sparnaðartækifærin liggja í vali á skrifstofuvöndli, stýrikerfum og ýmsum sérhæfðum hugbúnaði. Þó verður að meta kosti slíkra lausna þar sem flókin vinnsla upplýsinga og notkun stórra gagnagrunna á sér stað. Í fjármálaráðuneytinu er hafin greining á kostnaði við upplýsingatækni hjá ríkinu og auk þess hafa nokkur ráðuneyti nýlega hafið skoðun á kostum og göllum frjáls og opins hugbúnaðar. Búist er við niðurstöðum úr þeirri vinnu næsta vor.