Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 238. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Prentað upp.

Þskj. 376  —  238. mál.
Leiðrétting.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 113/1994, um eftirlaun til aldraðra, með síðari breytingum.

Frá félags- og tryggingamálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ágúst Þór Sigurðsson og Hönnu Maríu Þórhallsdóttur frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu og Einar Örn Thorlacius og Jón Grétar Magnússon frá Tryggingastofnun ríkisins.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um eftirlaun aldraðra. Ákvæði um eftirlaun til aldraðra voru upphaflega færð í lög árið 1970 til að tryggja að þeir félagsmenn í stéttarfélögum sem aldurs vegna næðu ekki að mynda réttindi í lífeyrissjóðum með greiðslu iðgjalds nytu nokkurra eftirlauna. Sá hópur sem lögin taka til hefur minnkað mikið með árunum og starfsemi umsjónarnefndar eftirlauna hefur að sama skapi dregist mjög saman. Í frumvarpinu er því lagt til að umsjónarnefndin verði felld niður en verkefni hennar falin Tryggingastofnun ríkisins. Þó mun Greiðslustofa lífeyrissjóða áfram sjá um greiðslur lífeyris samkvæmt lögunum. Þá verða ákvarðanir Tryggingastofnunar samkvæmt lögunum kæranlegar til úrskurðarnefndar almannatrygginga en sá möguleiki var ekki fyrir hendi um úrskurði umsjónarnefndar eftirlauna.
    Nefndin hefur fjallað um málið sem ráðgert er að spari ríkissjóði 450 þúsund krónur á ári í þóknunarkostnað umsjónarnefndarinnar. Í athugasemdum við frumvarpið kemur fram að lífeyrisþegar sem fá greiðslur samkvæmt lögunum séu um 800 talsins. Nefndin fékk þær upplýsingar að í athugasemdunum væri miðað við tölur frá 2007 en tölur frá síðasta ári sýna rúmlega 16% fækkun lífeyrisþega samkvæmt lögunum milli ára. Lífeyrisþegar árið 2008 voru 670, makalífeyrisþegar 459 og ellilífeyrisþegar voru 211. Þá hefur nefndin fengið nýjar upplýsingar sem sýna mikla fækkun frá síðasta ári, eða tæplega 40% þar sem 404 lífeyrisþegar fengu greiðslur samkvæmt lögunum í nóvember 2009. Ljóst er því að starfsemi umsjónarnefndarinnar hefur minnkað mikið undanfarin ár. Þá virðist almenn sátt vera meðal aðila um frumvarpið sem leiðir ekki til breytinga á rétti lífeyrisþega.
    Nefndin leggur til smávægilega breytingu á frumvarpinu til leiðréttingar á texta laganna.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Á eftir 2. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
    Í stað orðsins „úrskurðun“ í 5. mgr. 6. gr. laganna kemur: ákvörðun.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Pétur H. Blöndal, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Jón Gunnarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 10. des. 2009.



Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,


frsm.


Guðmundur Steingrímsson.


Ólína Þorvarðardóttir.



Árni Þór Sigurðsson.


Þórunn Sveinbjarnardóttir.


Ólafur Þór Gunnarsson.