Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 681  —  378. mál.




Fyrirspurn


til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um samgönguáætlun.

Frá Sigurgeir Sindra Sigurgeirssyni.


    1.      Hvenær má búast við að endurskoðuð eða ný samgönguáætlun verði birt?
    2.      Má vænta þess að í þeirri endurskoðun verði kynntar nýjar vegaframkvæmdir í Norðvesturkjördæmi?
    3.      Hefur verið rætt um mögulega tengingu milli Suður- og Vesturlands með heilsársvegi um Uxahryggi að Þingvöllum?