Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 711  —  400. mál.




Fyrirspurn


til fjármálaráðherra um skuldameðferð og skuldastöðu sjávarútvegsfyrirtækja í íslenskum bönkum.

Frá Ólínu Þorvarðardóttur.


    1.      Hvaða verklagsreglur eru eða hafa verið viðhafðar við mat á yfirfærslu skulda sjávarútvegsfyrirtækja úr gömlu bönkunum í þá nýju?
    2.      Hafa lán sjávarútvegsfyrirtækja verið afskrifuð eftir bankahrunið og ef svo er, í hve miklum mæli?
    3.      Hafa lán sjávarútvegsfyrirtækja verið fryst eftir bankahrunið og ef svo er, um hvaða upphæðir er að ræða og til hve langs tíma?
    4.      Hve mikið af skuldum útgerðarfyrirtækja varð eftir í þrotabúum gömlu bankanna þriggja, sundurliðað eftir bönkum?
    5.      Hve stór hluti skulda útgerðarfyrirtækja fluttist yfir í nýju bankana þrjá, sundurliðað eftir bönkum?


Skriflegt svar óskast.