um undirbúning að hönnun og stækkun Þorlákshafnar.
Flm.: Árni Johnsen, Róbert Marshall, Ásbjörn Óttarsson, Björgvin G. Sigurðsson,
Sigurður Ingi Jóhannsson, Margrét Tryggvadóttir, Oddný G. Harðardóttir,
Eygló Harðardóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir, Ragnheiður E. Árnadóttir.
Alþingi ályktar að skora á samgönguráðherra að fela Siglingastofnun að hefja nú þegar
undirbúning að hönnun og stækkun Þorlákshafnar þannig að höfnin geti þjónustað 60–80 þús.
tonna skip, allt að 225 metra löng.
Greinargerð.
Tillaga þessi var áður flutt á 136. löggjafarþingi en varð ekki útrædd og er því endurflutt
nú óbreytt. Henni fylgdi þá eftirfarandi greinargerð:
Fyrirhuguð er mikil uppbygging í Þorlákshöfn á næstu árum á sviði iðnaðar, stóriðju og
matvælaiðnaðar. Því er mikilvægt að íslensk stjórnvöld hafi á takteinum hugmyndir að stærð
og gerð hafnar á næstu missirum. Þorlákshöfn er eina þjónustuhöfnin fyrir allt Suðurlandsundirlendið þar sem mjög mikil uppbygging atvinnurekstrar á sér nú stað.
Árnessýsla og Rangárvallasýsla eru mjög ört vaxandi athafnasvæði og ein hin mesta uppbygging á landinu er í Árnessýslu. Erlend stórfyrirtæki í ýmsum greinum stóriðju standa nú
í viðræðum við bæjaryfirvöld í Ölfusi um uppbyggingu þar. Slík uppbygging mun hafa mikla
og jákvæða þýðingu fyrir Suðurland og landið allt. Því skiptir miklu máli að geta brugðist við
eftirspurninni með stuttum fyrirvara. Nær 100 stór flutningaskip og farþegaskip koma nú
þegar árlega til Þorlákshafnar og mikil aukning er fyrirsjáanleg auk alls fiskiskipaflotans sem
Þorlákshöfn þjónustar, bæði lítil og stór skip.