Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 436. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1036  —  436. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um brottfall laga nr. 16/1938, um að heimila í viðeigandi tilfellum aðgerðir á fólki, er koma í veg fyrir, að það auki kyn sitt.

Frá heilbrigðisnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið umsagnir frá landlækni, Þroskahjálp og Öryrkjabandalagi Íslands. Umsagnirnar sem bárust eru samhljóma og styðja framgang frumvarpsins.
    Frumvarpið kveður á um brottfall laga sem heimila í viðeigandi tilfellum aðgerðir á fólki til að koma í veg fyrir að það auki kyn sitt. Lögin eru birt í heild í lagasafni með eftirfarandi athugasemd: „L. 16/1938 eru úr gildi fallin, sbr. 33. gr. laga 25/1975, nema að því er varðar afkynjanir.“ Íslensk stjórnvöld undirrituðu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks 30. mars 2007. Í kjölfar þeirrar undirritunar var skipuð nefnd til að kanna hvort lög og reglugerðir hér á landi uppfylltu kröfur sem lagðar eru á aðildarríki samkvæmt samningnum. Komst sú nefnd m.a. að þeirri niðurstöðu að fella þyrfti framangreind lög úr gildi. Í skýrslunni kom jafnframt fram að Danmörk var fyrsta landið á Norðurlöndum til að setja lög um ófrjósemisaðgerðir árið 1929. Noregur og Svíþjóð fylgdu á eftir 1934 og Finnland ári seinna. Þessi lög giltu fram á áttunda áratuginn.
    Nefndin hefur á fundum sínum fjallað um málið og telur að með frumvarpi þessu sé stigið tímabært skref í átt að auknum réttindum fatlaðs fólks. Enn fremur bendir nefndin á að með frumvarpi þessu sé komið til móts við kröfu 23. gr. framangreinds samnings Sameinuðu þjóðanna. Þar er kveðið á um skyldu aðildarríkja að gera árangursríkar og viðeigandi ráðstafanir í því skyni að uppræta mismunun gagnvart fötluðum í öllum málum sem lúta að hjónabandi, fjölskyldu, foreldrahlutverki og samböndum. Í c-lið 1. mgr. greinarinnar segir enn fremur að fatlaðir, þ.m.t. börn, skuli fá haldið frjósemi sinni til jafns við aðra.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt.
    Guðlaugur Þór Þórðarson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 27. apríl 2010.



Þuríður Backman,


form., frsm.


Sigmundur Ernir Rúnarsson.


Þórunn Sveinbjarnardóttir.



Siv Friðleifsdóttir.


Auður Lilja Erlingsdóttir.


Ásbjörn Óttarsson.



Valgerður Bjarnadóttir.


Skúli Helgason.