Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 490. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1080  —  490. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 127/2007, um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bergþór Magnússon frá utanríkisráðuneyti og Glóeyju Finnsdóttur frá umhverfisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 127/2007, um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES- samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn eftirtaldar gerðir:
     1.      Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/18/EB frá 12. mars 2001 um sleppingu erfðabreyttra lífvera út í umhverfið og niðurfellingu á tilskipun ráðsins 90/220/EBE.
     2.      Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2002/623/EB frá 24. júlí 2002 um leiðbeiningar sem bætast við II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/18/EB um sleppingu erfðabreyttra lífvera út í umhverfið og niðurfellingu á tilskipun ráðsins 90/ 220/EBE.
     3.      Ákvörðun ráðsins 2002/811/EB frá 3. október 2002 um leiðbeiningar sem bætast við VII. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/18/EB um sleppingu erfðabreyttra lífvera út í umhverfið og niðurfellingu á tilskipun ráðsins 90/220/EBE.
     4.      Ákvörðun ráðsins 2002/812/EB frá 3. október 2002 um eyðublað, samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/18/EB, fyrir samantekt upplýsinga í tengslum við að setja erfðabreyttar lífverur á markað sem vörur eða hluta af vörum.
     5.      Ákvörðun ráðsins 2002/813/EB frá 3. október 2002 um eyðublað, samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/18/EB, fyrir samantekt tilkynninga um sleppingu erfðabreyttra lífvera út í umhverfið í öðrum tilgangi en að setja þær á markað.
     6.      Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2003/701/EB frá 29. september 2003 um eyðublað, samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/18/EB, fyrir niðurstöður er varða sleppingu erfðabreyttra háplantna út í umhverfið í öðrum tilgangi en að setja þær á markað.
     7.      Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2004/204/EB frá 23. febrúar 2004 þar sem mælt er fyrir um nákvæma tilhögun við vinnslu skránna yfir upplýsingar um erfðabreytingar á erfðabreyttum lífverum sem kveðið er á um í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/18/EB.
    Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/18/EB er endurskoðun á tilskipun ráðsins 90/ 220/EBE og kemur í stað hennar. Tilskipuninni er ekki ætlað að koma í veg fyrir sleppingu og markaðssetningu erfðabreyttra lífvera. Aftur á móti kveður hún á um ítarlegri málsmeðferðarreglur en eldri tilskipun gerði. Þar er ekki síst mikilvægt að kveðið er á um aukinn rétt almennings til aðkomu að málum áður en endanleg ákvörðun um leyfisveitingu er tekin.
    Við samningu tilskipunarinnar var tekið sérstakt mið af varúðarreglunni (e. Precautionary Principle) og kveðið á um að taka beri tillit til hennar þegar tilskipunin komi til framkvæmda. Varúðarreglan er meginregla í umhverfisrétti sem er m.a. að finna í 15. meginreglu Ríó- yfirlýsingarinnar. Hún felur í sér að þar sem hætta er á alvarlegu eða óbætanlegu tjóni skuli ekki beita skorti á vísindalegri fullvissu sem rökum til að fresta kostnaðarhagkvæmum aðgerðum sem koma í veg fyrir umhverfisspjöll. Þetta má líka orða þannig að þegar fyrir hendi er vísindaleg óvissa um afleiðingar framkvæmda fyrir umhverfið, skuli náttúran njóta vafans.
    Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2002/623/EB felur í sér viðbótarleiðbeiningar um hvernig beri að framkvæma áhættumat vegna sleppingar erfðabreyttra lífvera út í umhverfið, bæði í tilraunaskyni og til markaðssetningar. Í ákvörðuninni eru almenn atriði, byggð á varúðarreglunni, sem hafa ber til hliðsjónar við áhættumat, aðferðafræði við áhættumat og leiðbeiningar um skref við að komast að niðurstöðu.
    Ákvörðun ráðsins 2002/811/EB felur í sér leiðbeiningar um hvernig staðið skuli að þessari vöktun umhverfisins í samræmi við kröfur sem gerðar eru í tilskipun 2001/18/EB um að umsækjendur um vísvitandi sleppingu á erfðabreyttum lífverum út í umhverfið haldi uppi vöktun til þess að finna og rekja hugsanleg bein eða óbein skaðleg áhrif þeirra á umhverfið.
    Ákvörðun ráðsins 2002/812/EB er um eyðublað, samkvæmt tilskipun 2001/18/EB, fyrir samantekt upplýsinga sem fylgja þurfa umsókn til lögbærra yfirvalda um leyfi til markaðssetningar á erfðabreyttri lífveru eða erfðabreyttum lífverum í afurðum. Umsækjanda er skylt að nota þetta tiltekna eyðublað.
    Ákvörðun ráðsins 2002/813/EB er um eyðublað, samkvæmt tilskipun 2001/18/EB, fyrir samantekt tilkynninga um sleppingu erfðabreyttra lífvera út í umhverfið í öðrum tilgangi en að setja þær á markað.
    Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2003/701/EB er um eyðublað, samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/18/EB, fyrir niðurstöður er varða sleppingu erfðabreyttra háplantna út í umhverfið í öðrum tilgangi en að setja þær á markað.
    Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2004/204/EB er um nákvæma tilhögun við vinnslu skráa yfir upplýsingar um erfðabreytingar á erfðabreyttum lífverum sem kveðið er á um í tilskipun 2001/18/EB. Tiltekið er nákvæmlega hvaða upplýsingar eiga að koma fram og að um tvær skrár sé að ræða, eina sem skal vera opinber almenningi og aðra sem er aðgengileg yfirvöldum ríkja og inniheldur trúnaðarupplýsingar.
    Innleiðing tilskipunar 2001/18/EB kallar á breytingar á lögum nr. 18/1996, um erfðabreyttar lífverur. Frumvarp þess efnis hefur þegar verið lagt fram á Alþingi og tekið til 1. umræðu og er til meðferðar hjá umhverfisnefnd.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Bjarni Benediktsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 6. maí 2010.



Valgerður Bjarnadóttir,


varaform., frsm.


Helgi Hjörvar.


Birgitta Jónsdóttir.



Ragnheiður E. Árnadóttir.


Þuríður Backman.

Þórunn Sveinbjarnardóttir.



Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.