Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 542. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1092  —  542. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2010.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Tómas Heiðar frá utanríkisráðuneytinu.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2010. Samningurinn kveður á um allar heimildir aðila til veiða á uppsjávarfiski í lögsögu hvors annars á árinu 2010, gagnkvæma heimild skipa hvors aðila til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan lögsögu hins á árinu 2010 auk þess sem hann kveður á um að hvor aðili skuli veita tveimur skipum sem skráð eru í landi hins aðilans leyfi til tilraunaveiða á túnfiski innan lögsögu sinnar á árinu 2010.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 12. maí 2010.



Árni Þór Sigurðsson,


form., frsm.


Valgerður Bjarnadóttir.


Birgitta Jónsdóttir.



Bjarni Benediktsson.


Helgi Hjörvar.


Ragnheiður E. Árnadóttir.



Þórunn Sveinbjarnardóttir.