Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 593. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1094  —  593. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2010.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Tómas Heiðar frá utanríkisráðuneytinu.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til ríkisstjórnarinnar um að staðfesta þrjá samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2010 sem gerðir voru í London 22. október 2009. Um er að ræða sameiginlega bókun um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2010; samkomulag milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Noregs norðan 62°N, fiskveiðilögsögu Jan Mayen og efnahagslögsögu Íslands á árinu 2010; og samkomulag milli Íslands og Rússneska sambandsríkisins um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 2010.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 14. maí 2010.



Árni Þór Sigurðsson,


form., frsm.


Valgerður Bjarnadóttir.


Birgitta Jónsdóttir.



Bjarni Benediktsson.


Helgi Hjörvar.


Ragnheiður E. Árnadóttir.



Þórunn Sveinbjarnardóttir.