Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 514. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1219  —  514. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000, með síðari breytingum.

Frá umhverfisnefnd.



    Nefndin hefur fengið á sinn fund Sigríði Auði Árnadóttur og Glóeyju Finnsdóttur frá iðnaðarráðuneytinu, Guðjón Bragason frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Lárus M. K. Ólafsson frá Orkustofnun, Kristínu Sigfúsdóttur, Pétur Reimarsson frá Samtökum atvinnulífsins, Bryndísi Skúladóttur frá Samtökum iðnaðarins og Gústaf A. Skúlason frá Samorku. Þá bárust umsagnir frá Félagi heilbrigðis- og umhverfisfulltrúa, Fornleifavernd ríkisins, Hafrannsóknastofnuninni, Landmælingum Íslands, Landgræðslunni, Náttúrufræðistofnun Íslands, Norðurorku hf., Orkustofnun, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samorku, Umhverfisstofnun og Veðurstofu Íslands.
    Með frumvarpinu er lagt til að úrskurðarfrestur ráðherra verði lengdur vegna kæra sem berast sökum ákvarðana sem tilteknar eru í 1. og 3. mgr. 14. gr. laga um umhverfismat, m.a. ákvörðun Skipulagsstofnunar um að framkvæmd sem tilgreind er í 2. viðauka sé háð umhverfismati, sbr. 6. gr. laganna og ákvörðun stofnunarinnar um hvort meta skuli matsskyldar framkvæmdir sameiginlega, sbr. 2. mgr. 5. gr. laganna. Lagt er til að fresturinn verði lengdur úr tveimur mánuðum í þrjá og jafnframt verði heimilt að framlengja hann um allt að þrjá mánuði til viðbótar ef mál er umfangsmikið.
    Nefndin hefur fjallað um málið og áréttar mikilvægi þess að gætt sé að grundvallarreglu stjórnsýsluréttar um að ákvarðanir í málum er lúta að stjórnsýslunni skuli teknar svo fljótt sem unnt er, sbr. 1. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, en þessi regla á jafnt við um niðurstöður í kærumálum. Nefndin leggur til breytingu á ákvæðinu til að undirstrika þessi sjónarmið. Þá er rétt að benda á að umsagnaraðilar verða einnig að standa við setta tímaramma.
    Fram kemur í frumvarpinu að ef mál er umfangsmikið verði heimilt að framlengja frest til úrskurðar um allt að þrjá mánuði til viðbótar. Nefndin áréttar að ef nota þarf þá heimild þurfi að fylgja slíkri ákvörðun rökstuðningur í ljósi þeirra hagsmuna sem búa að baki svo ekki dragist úr hófi að fá niðurstöður kærumála.
    Þau mál sem hér um ræðir eru umfangsmikil og sérhæfð en ákvarðanir er snúa að áhrifum framkvæmda á umhverfið eru í eðli sínu matskenndar og krefjast því mikillar sérfræðivinnu. Í ljósi þess að stjórnvald skuli sjá til þess að mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því, sbr. ákvæði stjórnsýslulaga, telur nefndin að skapa þurfi stjórnsýslunni nægilegt svigrúm til að vanda gagnaöflun sína og úrvinnslu til að leggja grunn að réttri og löglegri stjórnvaldsákvörðun. Nefndin fellst því á nauðsyn þess að lengja úrskurðarfrest ráðherra.
    Í ljósi reynslunnar telur nefndin rétt að skipaður verði starfshópur til að fara heildstætt yfir málsmeðferð í málum er lúta að mati á umhverfisáhrifum.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:



    Við 1. gr. bætist tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Verði frestur framlengdur ber að skýra aðila frá því. Skal þá rökstyðja ástæður tafanna og upplýsa um hvenær ákvörðunar sé að vænta.

    Vigdís Hauksdóttir, Kristján Þór Júlíusson og Birgir Ármannsson skrifa undir álit þetta með fyrirvara.
    Birgitta Jónsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 4. júní 2010.



Ólína Þorvarðardóttir,


form., frsm.


Sigríður Ingibjörg Ingadóttir.


Anna Margrét Guðjónsdóttir.



Þuríður Backman.


Margrét Pétursdóttir.


Vigdís Hauksdóttir,


með fyrirvara.



Kristján Þór Júlíusson,


með fyrirvara.


Birgir Ármannsson,


með fyrirvara.