Óundirbúinn fyrirspurnatími

Fimmtudaginn 27. janúar 2011, kl. 11:04:58 (0)


139. löggjafarþing — 66. fundur,  27. jan. 2011.

Landeyjahöfn.

[11:04]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég vil taka undir þau sjónarmið sem hér koma fram. Það er mjög mikilvægt að halda greiðum samgöngum á milli lands og Vestmannaeyja og við skulum ekki gleyma því að við erum í reynd að tala um þjóðveginn til Vestmannaeyja.

Ég þakka fyrir þær ábendingar sem komu fram en ítreka það sem fram kom hjá mér í fyrra svari mínu.