Tilkynning um dagskrá

Fimmtudaginn 31. mars 2011, kl. 10:31:13 (0)

139. löggjafarþing — 104. fundur,  31. mars 2011.

tilkynning um dagskrá.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill geta þess að atkvæðagreiðslur verða að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma.

Um kl. 11 fer fram umræða utan dagskrár um endurreisn íslenska bankakerfisins. Málshefjandi er hv. þm. Eygló Harðardóttir. Hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra Árni Páll Árnason verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.

Forseti vill geta þess að áður boðuð utandagskrárumræða um endurskoðun á tekjum af Lottói fellur niður af óviðráðanlegum orsökum.