Innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta

Fimmtudaginn 31. mars 2011, kl. 15:26:38 (0)


139. löggjafarþing — 104. fundur,  31. mars 2011.

innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta.

237. mál
[15:26]
Horfa

Sigurður Kári Kristjánsson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég á erfitt með að svara hæstv. forseta úr sal, ég vil frekar gera það úr ræðustóli Alþingis. Ég þakka hæstv. forseta kærlega fyrir að taka svona vel í þá beiðni sem hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson setti fram varðandi viðveru hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra í þessari umræðu. Mig langar til að velta þeirri spurningu upp hvort hæstv. forseti Alþingis telur eðlilegt að umræðan haldi áfram meðan hæstv. ráðherra er ekki kominn í hús.