fjölmiðlar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Skúla Helgasyni fyrir andsvarið og gleðst yfir því að hugsanlega sé eingöngu ágreiningur um aðferðafræði varðandi þann samkeppnisþátt sem ég fjallaði um í ræðu minni. Vonandi er meiri samhljómur um að taka á þeim atriðum sem fram koma hjá Samkeppniseftirlitinu almennt. Hugsanlega greinir okkur eingöngu á um aðferðafræðina við að taka á því verkefni í ljósi þess að það er ekki gert í þessu frumvarpi og þá fagna ég því.
Ég þakka menntamálanefnd aftur, eins og ég gerði í upphafi ræðu minnar, þá ekki síst formanni hennar, fyrir það með hvaða hætti þessari vinnu var stýrt. Stjórnin var að öllu leyti í sátt við þá sem eiga sæti í menntamálanefnd. Þeim óskum sem fram komu, hvort heldur voru frá meiri hluta nefndarinnar eða minni hluta, var fylgt eftir og ég vona að sú vinna sem fór fram um fjölmiðlafrumvarpið í menntamálanefnd og sú aðferðafræði sem þar var beitt sé hluti af breyttum vinnuháttum okkar þingmanna í að koma okkur saman um að ljúka verkefnum og betrumbæta þó að við getum ekki verið sammála um allt. Við verðum að skila af okkur afurð sem við getum verið sáttari við en þá afurð sem við fengum inn í upphafi. Ef okkur tekst að breyta vinnulagi og aðferðafræði í þá veru höfum við tekið æðimörg skref fram á við og það er í anda þess sem við hétum að gera í september 2010. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)