Þjónustuviðskipti á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins

Fimmtudaginn 14. apríl 2011, kl. 11:50:06 (0)


139. löggjafarþing — 112. fundur,  14. apr. 2011.

þjónustuviðskipti á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins.

645. mál
[11:50]
Horfa

efnahags- og viðskiptaráðherra (Árni Páll Árnason) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um þjónustuviðskipti á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins og frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna þjónustuviðskipta á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins. Bæði frumvörpin voru áður flutt á 138. löggjafarþingi en voru þá ekki afgreidd og eru því lögð fram að nýju.

Með frumvarpinu þjónustuviðskipti á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins er verið að innleiða í íslenskan rétt efnisákvæði tilskipunar nr. 2006/123, um þjónustu á innri markaðnum, eða hina svokölluðu þjónustutilskipun, en hún var tekin upp í EES-samninginn í júní 2009.

Tillaga að þjónustutilskipun var fyrst lögð fram í Evrópusambandinu í janúar 2004 og var markmið hennar að greiða fyrir og auka þjónustuviðskipti milli landa, enda er það svo að þrátt fyrir ákvæði um innri markað voru enn töluverðar hindranir á frjálsu flæði þjónustu sem komu niður bæði á þjónustuveitendum og neytendum. Tillagan fékk mikla athygli og var afar umdeild pólitískt, sér í lagi vegna ákvæða um heilbrigðisþjónustu og vinnurétt sem voru upphaflega hluti af tillögunni. Hin svokallaða upprunalandsregla var einnig afar umdeild og óttast var að hún fæli í sér félagsleg undirboð en samkvæmt henni giltu um þjónustuveitanda reglur þess lands þar sem hann var með staðfestu en ekki þar sem þjónustan var veitt. Í ljósi þeirrar miklu gagnrýni sem tillagan hlaut lagði framkvæmdastjórnin fram nýja tillögu þar sem tekin voru út ákvæði um heilbrigðisþjónustu og vinnurétt og verulegar breytingar gerðar á upprunalandsreglunni og var sú tillaga samþykkt í desember 2006. Tilskipunin fékk töluverða athygli í Noregi og gerðu Norðmenn ítarlegar úttektir á hinum ýmsu afleiðingum hennar. Að lokum náðist þó samstaða um hana og var hún, eins og áður segir, tekin upp í EES-samninginn 9. júní 2009.

Bæði Norðmenn og Íslendingar settu fyrirvara við innleiðingu tilskipunarinnar þegar hún var tekin upp í EES-samninginn. Með fyrirvörunum voru löndin að skerpa á því að tilskipunin gildi ekki um vinnurétt og hún hafi ekki áhrif á rétt stjórnvalda til að ákveða hvaða þjónusta er veitt af hinu opinbera og hvernig sú þjónusta er skipulögð og fjármögnuð.

Við samningu frumvarpsins var tekið mið af fyrirvara Íslands og sér þess glögg merki, bæði í gildissviðsákvæði frumvarpsins sem og í athugasemdum með því. Drög að frumvarpinu voru send til hagsmunaaðila áður en það var fyrst lagt fyrir ríkisstjórn og bárust góðar umsagnir, meðal annars frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja sem tekið var mikið tillit til og var gildissviðsákvæði frumvarpsins meðal annars mikið breytt til að komast til móts við athugasemdir BSRB.

Frumvarpið var einnig sent til umsagnar frá viðskiptanefnd Alþingis þegar málið var þar til umfjöllunar á 138. löggjafarþingi og komu meðal annars athugasemdir á þeim tíma frá Alþýðusambandi Íslands og í kjölfar þeirra var ákveðið að gera nokkrar breytingar á frumvarpinu áður en það var svo lagt fram nú að nýju.

Í almennum athugasemdum við frumvarpið er fjallað sérstaklega um þær breytingar sem gerðar hafa verið á frumvarpinu milli þinga.

Í I. kafla frumvarpsins er fjallað um tilgang, gildissvið og skilgreiningar. Með kaflanum var í fyrsta skipti verið að leiða í íslensk lög hugtökin „þjónusta í almannaþágu sem ekki er af efnislegum toga“, og hugtakið „þjónusta í almannaþágu sem hefur almenna efnahagslega þýðingu“, en hugtökin eru undirhugtök þess sem í daglegu tali mætti kalla almannaþjónustu. Þjónusta sem fellur í fyrri flokkinn er undanskilin gildissviði frumvarpsins, en síðari flokkurinn fellur undir frumvarpið. Frumvarpið hefur hins vegar ekki áhrif á rétt ríkisins til að ákvarða hvaða þjónusta fellur í hvorn flokk um sig. Gildissvið frumvarpsins er viðamikið, en þó eru stór þjónustusvið undanskilin, svo sem heilbrigðisþjónusta, félagsþjónusta og fjármálaþjónusta.

Í II. kafla er fjallað um aðgengi að þjónustu, kröfur til skjalagerðar og rétt til upplýsinga. Til að tryggja jafnræði þeirra sem veita þjónustu á EES-svæðinu er í frumvarpinu kveðið á um rafræna málsmeðferð sem felur í sér að þjónustuveitandi á að geta sótt um leyfi til að stunda starfsemi sína rafrænt og fengið rafræn svör frá leyfisveitendum. Af þeim sökum vinnur forsætisráðuneytið nú að uppsetningu vefsvæðis þar sem eyðublöð og upplýsingar um leyfi verða aðgengileg. Leyfisveitanda er samkvæmt frumvarpinu óheimilt að krefjast þess að skjöl frá öðrum EES-ríkjum séu í frumriti, staðfestu endurriti eða löggilt þýðing liggi fyrir nema brýnir almannahagsmunir krefjist.

Í III. kafla er fjallað um staðfesturétt þjónustuveitanda og leyfisveitingar. Ef aðgangur að því að veita þjónustu með staðfestu er háður leyfum skulu skilyrði fyrir veitingu leyfa vera án mismununar, nauðsynleg vegna brýnna almannahagsmuna og í samræmi við meðalhóf. Í kaflanum er einnig að finna ítarleg ákvæði um gildistíma leyfa og málsmeðferð við leyfisveitingar.

Í IV. kafla laganna er fjallað um frelsi til að veita þjónustu án staðfestu. Þar er meðal annars verið að innleiða 16. gr. tilskipunarinnar, svokallaða upprunalandsreglu, en hún felur í sér að þjónustuveitandi sem hyggst veita þjónustu án staðfestu á að meginstefnu til ekki að þurfa að undirgangast nein skilyrði í ríki þar sem hann hyggst veita þjónustuna, heldur eiga að gilda um hann lög og reglur staðfestuaðildarríkis hans. Frá þessu er þó heimilt að víkja með vísan til allsherjarreglu, almannaöryggis, lýðheilsu eða umhverfisverndar.

Í V. kafla er fjallað um viðtakendur þjónustu, aðstoð við viðtakendur o.fl. Þar kemur fram að óheimilt er að mismuna viðtakendum á grundvelli þjóðernis eða búsetu og að auki eiga viðtakendur rétt á ákveðinni aðstoð frá íslenskum stjórnvöldum við að leita sér upplýsinga hvaða reglur gilda um þjónustuveitingu í öðrum EES-ríkjum, einkum hvað varðar réttindi neytenda og mun Neytendastofa taka að sér að veita þjónustuviðtakendum nauðsynlega aðstoð.

Þá er í kaflanum að finna ákvæði þar sem tekið er fram að óheimilt sé að krefjast þess að starfsábyrgðartrygging þjónustuveitanda sé gefin út af íslensku tryggingafélagi, allsherjarbann við markaðssetningu lögverndaðra starfsstétta er óheimilt nema að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Einnig er kveðið á um að þjónustuveitandi hafi rétt til að stunda þverfaglega starfsemi.

Þá er í VI. kafla ákvæði um samvinnu á sviði stjórnsýslu, enda mikilvægt ef tilskipunin á að ná markmiðum sínum að hafa verulega samvinnu stjórnvalda á EES-svæðinu.

Virðulegi forseti. Ég mæli jafnframt fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna þjónustuviðskipta á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins, sem felur í sér að gerðar eru nauðsynlegar breytingar á ýmsum lögum vegna innleiðingar þjónustutilskipunarinnar og er því um bandorm að ræða.

Hvert og eitt ráðuneyti innan Stjórnarráðsins var beðið um að yfirfara löggjöf á sínu sviði og gera tillögu að breytingum á þeim starfssviðum sem viðkomandi ráðuneyti fara með til að innleiða þjónustutilskipunina með fullnægjandi hætti og er afraksturinn að finna í frumvarpi þessu.

Lagt er til að lögum nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, verði breytt þannig að skilyrði sem kveður á um að búseta á Íslandi sé forsenda rekstrarleyfis samkvæmt lögunum gildi ekki um ríkisborgara og lögaðila innan EES-aðildarríkja, Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyinga.

Lagt er til að sams konar breytingar verði gerðar á lögum nr. 28/1998, um verslunaratvinnu, lögum nr. 145/1994, um bókhald, og lögum nr. 64/2000, um bílaleigur.

Að sama skapi er lögheimilisskilyrði fellt niður í lögum nr. 36/1994, um húsaleigu. Með breytingum á lögum nr. 28/1998, um verslunaratvinnu, er lagt til að efnahags- og viðskiptaráðherra sé heimilt að ákveða að heimild til að veita leyfi til sölu notaðra ökutækja og leyfi til uppboðsstjóra verði á hendi eins sýslumanns í stað þess að hver og einn sýslumaður veiti leyfi í sínu umdæmi.

Í lögum nr. 28/1998, um verslunaratvinnu, lögum nr. 79/2008, um endurskoðendur, og lögum nr. 64/2000, um bílaleigur, er lagt til að orðalagi hvað varðar starfsábyrgðartryggingar verði breytt og allur vafi tekinn af um það að heimilt sé að taka starfsábyrgðartryggingu hjá öðrum vátryggingafélögum en íslenskum hafi umrædd félög öðlast heimild til að veita þjónustu hér á landi, samkvæmt lögum nr. 60/1994, um vátryggingastarfsemi.

Þá er lagt til að tímabundin veiting leyfa til sölu notaðra ökutækja, samkvæmt lögum nr. 28/1998, um verslunaratvinnu, verði felld niður, en þau eru nú veitt til fimm ára í senn sem og tímabinding leyfa vegna löggildingar rafverktaka, samkvæmt lögum nr. 146/1996, um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga.

Ég mælist til þess, virðulegi forseti, að frumvörpunum verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. viðskiptanefndar.