Sala sjávarafla o.fl.

Föstudaginn 15. apríl 2011, kl. 11:52:58 (0)


139. löggjafarþing — 113. fundur,  15. apr. 2011.

sala sjávarafla o.fl.

50. mál
[11:52]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf):

Frú forseti. Ég er tiltölulega mjög hlynntur efni þeirrar ályktunartillögu sem liggur fyrir en ég vil ekki fá hana til ríkisstjórnarinnar. Ég vil miklu frekar að hún komi til umræðu í þinginu. Mjög margir þingmenn hafa haft áhuga á þessu málið og ég hef í fortíðinni flutt mál sem eru skyld því. Ég mun þess vegna sitja hjá við afgreiðsluna.