gengi krónunnar.
Virðulegur forseti. Hæstv. fjármálaráðherra virðist helst koma af fjöllum hvað varðar yfirlýsingar Seðlabankans. Það hlýtur að vera töluvert áhyggjuefni ef fjármálaráðherra fréttir það fyrst á einhverjum fundum úti í bæ eða fréttir raunar í þinginu hver meginstefna Seðlabankans er í peningamálum. Hún virðist núna vera sú að bankinn vilji að gengi krónunnar veikist. Þá hlýtur maður að spyrja: Hvaða áhrif hefur það á forsendur kjarasamninga, sérstaklega í ljósi svara hæstv. ráðherra áðan?
Jafnframt fullyrðir bankinn að nú sé orðið ljóst að mjög litlar líkur séu á því að hægt verði að afnema gjakldeyrishöftin fyrr en áætlað er, væntanlega í lok árs 2015 í fyrsta lagi. Það hefur þegar haft þau áhrif að fasteignaverð er farið að hækka vegna þess að menn hafa enga aðra fjárfestingarkosti. Bendir þetta ekki allt til þess að hér sé að myndast allsherjarstöðnun, (Forseti hringir.) keðjuverkandi stöðnun?