stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni hólið en þegar ég hlustaði á andsvar hans velti ég fyrir mér: Var hann yfir höfuð að hlusta? Því ég talaði aldrei um að þetta væri besta kerfið, ég talaði um að þetta væri ekki óumdeilt kerfi, þetta væri skásta kerfið og skynsamlegasta kerfið sem við sæjum í sjávarútvegi. Spurningin er: Af hverju að vaða og ana út í óvissuna þegar við stöndum frammi fyrir því að við höfum skapað hér sjávarútvegskerfi, kerfi sem hefur stuðlað að því að sprotafyrirtæki starfa nú sem aldrei fyrr í sjávarútveginum? Reyndar er það svo að t.d. málmsmíðin hefur minnkað, og það ætti hv. þingmaður að þekkja vel að skipasmíðin hefur minnkað til að mynda vegna þess að óvissan er það mikil í sjávarútveginum núna að menn halda að sér höndum þegar kemur að fjárfestingum. Ég skil vel að hv. þingmanni líði hálfilla eða sé pínu krumpaður yfir þessu því að hann hefur verið barinn niður með sínar skoðanir eins og þær hafa birst manni. Ég hefði talið að hann mundi standa þéttar (Forseti hringir.) bak við þá niðurstöðu sem sáttanefndin í sjávarútvegi komst að en svo virðist ekki vera.