stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Ólöfu Nordal fyrir fyrstu og að ég held einu málefnalegu ræðuna sem sjálfstæðisþingmaður hefur flutt í þessari umræðu frá því málið var tekið á dagskrá í gær. Ég er algerlega sammála hv. þingmanni um að við eigum að ræða þetta mál á þeim forsendum sem hún tók málið upp, ekki í formi upphrópana, uppnefna og heiftúðlegra gífuryrða heldur eigum við að velta fyrir okkur hver sé tilgangurinn með fiskveiðistjórn almennt.
Því er svarað m.a. í stjórnarsáttmálanum og í lögum um stjórn fiskveiða, þ.e. að vernda fiskstofnana, tryggja arðsemi greinarinnar og samfélagslega hagkvæmni. Það er auðvitað hin samfélagslega hagkvæmni sem skiptir máli í þessu sambandi, að finna einhverja sanngjarna leið til að deila þeim takmörkuðu gæðum sem fiskveiðiauðlindin er (Forseti hringir.) á þann hátt að heildarhagsmunirnir njóti góðs af því og þeir vegi þyngra en sérhagsmunir. (Forseti hringir.) Það er ekki okkar hlutverk að vera í sérhagsmunagæslu.