stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég er ekki ein af þeim sem dettur í hug að hægt sé að útbúa þannig kerfi um úthlutun auðlinda og nýtingu þeirra að um náist fullkomin sátt, ekki einu sinni í hinum fullkomna heimi. En við erum samt alltaf að reyna að ná vörðum í átt til eins mikillar sáttar og hægt er. Mér finnst að þar skipti máli það sem greinin skilar til þjóðarinnar í formi skatttekna og almenns ábata. Ef við náum góðum árangri í því hygg ég að við komumst eins nálægt sátt og hægt er.
Hvaða breytingar vil ég gera á fiskveiðistjórnarkerfinu? Ég vil í fyrsta lagi segja að mér finnst ekki tímabært við þær aðstæður sem uppi eru núna að ræða slíkar breytingar. En eins og ég sagði áðan þá hygg ég að það gæti skapað sátt ef um málið (Forseti hringir.) væri fjallað í stjórnarskrá.