stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég tek undir það, það er alltaf fróðlegt og ágætt að hlusta á þingmanninn halda ræður um hin ýmsu mál. Sú kolsvarta mynd sem hann dró upp í ræðu sinni kom mér á óvart, sérstaklega þar sem staðreyndin er sú að frumvörpin sem liggja fyrir eru í öllum meginatriðum byggð á sáttaleiðinni sem sáttanefndin komst að sameiginlegri niðurstöðu um. Það kom líka fram í viðræðum hér í dag milli hv. þm. Eyglóar Harðardóttur og Einars K. Guðfinnssonar að þar var ekki sátt um öll útfærsluatriðin. Hérna greinir menn á um ýmis útfærsluatriði og það er hægt að taka undir það að hugmyndir um sérstaka potta sem sveitarstjórnarmenn og ráðherra úthluta úr eru ekki heppilegar. Ég tel svo ekki vera, ég held að það sé miklu betra að fyrna það sem fyrna á í einn pott sem er úthlutað úr á markaðslegum forsendum. Allt eru þetta atriði sem nefndin mun vinna að í sumar þegar málin eru komin út úr 1. umr. og inn í nefnd. Þetta eru útfærsluatriði.
Þingmaðurinn lýsti því áðan að flokkurinn hans, Sjálfstæðisflokkurinn, hefði staðið að sáttatillögunni í skýrslunni um meginatriðin, um nýtingarsamninga sem eru bundnir í tíma. Ég tel þá leið að mörgu leyti miklu heppilegri en þá sem fylgir því að fyrna tiltekna upphæð á hverju ári, þ.e. að innkalla allar heimildirnar í einu lagi og úthluta þeim öllum á einu bretti í nýtingarsamningi sem skapar um leið miklu meiri vissu fyrir greinina og fyrir útgerðina og kemur í veg fyrir það óhagræði sem þingmaðurinn dró upp í sinni kolsvörtu ræðu hérna áðan. Það kemur mér mjög á óvart af því að það blasir við að ef þessi leið verður farin og samþykkt frumvarp til laga sem samið er eftir málefnalegri tilsögn um ýmislegt, og mörg veigamikil atriði, heldur sér grunnhugmyndin og prinsippið. Það er nýtingarsamningur til 15 eða 20 ára eins og framsóknarmenn hafa lagt hér til, sáttanefndin líka og fleiri og þá standa (Forseti hringir.) engin rök á bak við það að svartnættisspáin gangi eftir.