Staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar

Fimmtudaginn 09. júní 2011, kl. 21:15:57 (0)


139. löggjafarþing — 147. fundur,  9. júní 2011.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar.

555. mál
[21:15]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Eitthvað vorum við hv. þm. Baldur Þórhallsson aðeins farnir að nálgast, fannst mér, og reynum að túlka það þannig að þessi umræða hafi kannski aðeins fært okkur nær. Ég verð þó að segja, af því hv. þingmaður vísar til þess að við eigum að treysta kennurunum til þess að hafa þetta með höndum, að ég treysti kennurunum ágætlega til þess að sinna þeim málaflokkum og mun betur en meiri hluta Samfylkingar og Besta flokksins í mannréttindaráði Reykjavíkur.