Athugun á fyrirkomulagi fraktflutninga við austurströnd Grænlands

Föstudaginn 16. september 2011, kl. 14:52:41 (0)


139. löggjafarþing — 165. fundur,  16. sept. 2011.

athugun á fyrirkomulagi fraktflutninga við austurströnd Grænlands.

476. mál
[14:52]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Frú forseti. Hér liggur fyrir tillaga til þingsályktunar um athugun á fyrirkomulagi fraktflutninga við austurströnd Grænlands. Tillaga þessi er flutt af Íslandsdeild þingmannanefndar Vestnorræna ráðsins, en með þessari tillögu er lagt til að Alþingi feli ríkisstjórninni að kanna vilja grænlensku landsstjórnarinnar til að láta meta hagkvæmni þess að breyta fyrirkomulagi vöruflutninga við austurströnd Grænlands í ljósi þeirra takmarkana sem núverandi sérleyfisfyrirkomulag hefur í för með sér fyrir byggðir þar.

Tillagan byggist á ályktun nr. 6/2010 sem samþykkt var á ársfundi Vestnorræna ráðsins í ágúst 2010 í Tasiilaq á Grænlandi en þar er áskorun þessa efnis beint til ríkisstjórnar Íslands og landsstjórna Færeyja og Grænlands.

Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að frumkvæði í málinu kemur frá landsdeild Grænlendinga vegna ábendinga frá bæjarbúum í Tasiilaq. Ályktun Vestnorræna ráðsins var samþykkt eftir að fulltrúar allra grænlensku stjórnmálaflokkanna afgreiddu einróma tillögu þar um í landsdeild Grænlands að viðstöddum samstarfsráðherra Grænlands.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt. Undir nefndarálitið rita Árni Þór Sigurðsson, Valgerður Bjarnadóttir, Birgitta Jónsdóttir, Bjarni Benediktsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Helgi Hjörvar, Ólöf Nordal og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.