Efling samgangna milli Vestur-Norðurlanda

Föstudaginn 16. september 2011, kl. 14:55:32 (0)


139. löggjafarþing — 165. fundur,  16. sept. 2011.

efling samgangna milli Vestur-Norðurlanda.

479. mál
[14:55]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Frú forseti. Hér er enn fremur til umfjöllunar tillaga til þingsályktunar um eflingu samgangna milli Vestur-Norðurlanda, enn ein þingsályktunartillaga í hópi þeirra sem Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins flytur.

Með þessari tillögu er lagt til að Alþingi feli ríkisstjórninni að stofna vinnuhóp, í samvinnu við Færeyjar og Grænland og með mögulegri þátttöku Norrænu Atlantsnefndarinnar (NORA), til að vinna tillögur til eflingar innviða flug- og sjósamgangna á milli Vestur-Norðurlandanna í þágu aukins samstarfs á sviði ýmiss konar viðskipta og þjónustu auk vöru- og farþegaflutninga á milli landanna. Byggt verði á þeirri vinnu sem þegar hefur farið fram hjá ýmsum stofnunum á svæðinu. Sérstaklega er lagt til að skoðaðar verði í þessu sambandi forsendur fyrir auknum tengslum á sviði þjónustu og viðskipta á milli Vestfjarða og Austur-Grænlands.

Þessi tillaga byggist á ályktun nr. 3/2010 sem samþykkt var á ársfundi Vestnorræna ráðsins í ágúst 2010 í Tasiilaq á Grænlandi en þar er áskorun þessa efnis beint til ríkisstjórnar Íslands og landsstjórna Færeyja og Grænlands.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt. Undir nefndarálitið rita Árni Þór Sigurðsson, Valgerður Bjarnadóttir, Birgitta Jónsdóttir, Bjarni Benediktsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Helgi Hjörvar, Ólöf Nordal og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.